|
Þegar öllu er á botninn hvolft, höfum við mikið um það að segja hvernig okkur líður og hvernig heilsan er. Við höfum valið! Að bíða og sjá hvernig hlutirnir þróast eða taka stjórnina og gera eitthvað í hlutunum.
Það að stunda líkamsrækt og reglulegar æfingar skilar sér á margan hátt. Þá erum við ekki bara að tala um það að grennast eða brenna fitu, sem jú eru góðir kostir, við erum að styrkja og byggja upp vöðva. Líkamsrækt styrkir ónæmiskerfið sem og hjarta-og æðakerfið, hefur áhrif til lækkunar blóðþrýstings, beinabyggingin styrkist svo ekki sé nú talað um sjálfsmat og sjálfstraust ásamt fjölda annarra jákvæðra áhrifa sem líkamsræktin skilar okkur. Líkamsrækt er góð fyrir sálartetrið, líklegast besta gleðilyfið.
Líkamsrækt býður uppá góðan félagsskap, svo er LÍKAMSRÆKT ÁHRIFAMESTA YNGINGARLYFIÐ. Oft talar fólk um að erfitt sé að finna tíma fyrir ræktina. Með smá skipulagi ættu allir að finna tíma sem þeir gætu mætt á, því opnunartími Lífsstíls stöðvanna er langur. Virku dagana er Lífsstíll Vatnsnesvegi opinn frá 5:45 á morgnana til 22:00 á kvöldin, Lífsstíll Sundmiðstöð frá 6:00 á morgnanna til 20:20 á kvöldin auk helgar opnunnar á báðum stöðum. Korthafar í Lífsstíl hafa aðgang að báðum stöðvunum, 2 stöðvar 1 verð. Í Lífsstíl eru vel búnir lyftinga- og tækjasalir, mikill fjöldi upphitunnar-og brennslutækja, fjöldi opinna tíma auk fjölbreytts úrvals námskeiða við allra hæfi. Fjöldi vel menntaðra Einkaþjálfara starfar í Lífsstíl.
Lífsstíll er nú í fyrsta sinn að fara að bjóða uppá Hnefaleika æfingar og er að stofna Íþróttafélag í kringum það. Lífsstíll er fyrir alla, konur og karla á öllum aldri. Nú er bara að láta sjá sig, við tökum vel á móti þér.
Gleðilegt sumar, tjekk, nú er bara að hafa gleðilegt haust og svo vetur og vor ;0)
Með Lífsstíls kveðju, Vikar Sigurjónsson
|